Wednesday, December 17, 2008

Heima

Ég er komin heim!! Það er svo gott að þið trúið því líklegast ekki.. Er að vinna á fullu hjá Kimi Records og það er ógeðslega gaman! Búin að kynnast helling af fólki síðan ég kom gegnum vinnunna og það er bara gaman.

Eyrún kom heim á sunnudaginn sem var mjög gott og Liljan búin í prófum þannig að allt er klárt í gaman! Arna er bara á Bolungarvík, borðandi og láta sér leiðast.. ég sakna hennar illa mikið þar sem við vorum eins og ungt ástfangið par og núna vantar part af mér sem ég vil fá aftur og dansa heyjalla dansinn og fríka smá út! ;)

Það er bara vika í jól! Búin að kaupa allar jólagjafir og ætla að baka um helgina þannig að þetta er bara allt að koma.. er svo spennt að fá góðan mat og slappa af.. þarf samt að læra ógeðslega mikið þannig að ef það er einhver þarna sem les þetta leiðinda blogg og kann á excel má hann koma til mín og hjálpa mér.. er í smá krísu..!! Hélt ég hefði losað mig við excel í menntaskóla en ætli þetta muni ekki fylgja mér allt mitt nám.

En annars er ég bara að láta vita af mér.. verið í bandi, er með sama númerið og er alltaf til í að gera eitthvað :)

Danish

4 comments:

Anonymous said...

ætli ég geti lært heyjalla dansinn...? væri gaman...að prófa..:)

Anonymous said...

hahahaha:)

Anonymous said...

Mamma það er klárt mál að þú getir lært heyjalla dansinn!! Hann mun verða kenndur hér á landi á næstu dögum, bíddu bara góða mín :)

Freyja said...

Haha Heimir sagði þetta líka og ég var einu sinni á þessari skoðun... en núna erum við excel orðin vinir!