Monday, June 23, 2008

Skemmtilegur tími

Mamma er svo að ofdekra við mig þessa dagana og hún og ég erum að elskaða! Hún átti s.s. alltaf eftir að gefa mér afmælisgjöf þannig að þar sem minni myndavél var stolið í London síðast þegar ég var þar ákvað hún að gefa mér nýja, þetta er alveg gæða vél og er ég öll spennt að fara að taka myndir af mínu lífi þetta sumarið.



Ég fór til læknis í dag útaf því að ég er alltaf með hálsbólgu. Þetta var háls- nef og eyrnalæknir þannig að ég bjóst við einhvejrum svörum... en neibb.. ekki frekar en fyrri daginn, lét mig fá nefúða og ég á að nota hann í mánuð. Hvað er það? Ef maður fer til læknis og er að borga 5000 kall fyrir tímann þá vil ég alveg fá að vita hvað er að mér. En jæja ég get svosem sætt mig við það að það sé ekkert verra að mér en það að ég þurfi að nota nefúða...
Annars gerði ég ekki mikið í dag, tók mér gögnutúr, fór á Austurvöll með Eyrúnu og Maríu og fengum okkur mat á Hressó sem var reyndar alveg mjög gott.
Mig langar bara svo að fara að fá rjóðar kinnar, allir komnir með rauð nef og kinnar en ég er fölari en allt. En það er kanski betra en að vera últra tönuð.. en á hinn bógin er ég nú ekki kölluð TANA fyrir ekki neitt..

Það fer að styttast í sumarfríið mitt... verður víst ekkert út hringferðinni en mun þó amk fara á Djúpavog. Kvíður reyndar svoldið fyrir að fara að keyra ein þangað.. Sumarbústaður á föstudaginn, Björk og Sigurrós á laugardaginn, partý partý og meiri sumarbústaður... æðislegt!!





Annars er ég bara mjög spennt fyrir öllu sem er framundan, finnst þetta of skemmtilegur tími...

Dana

2 comments:

Anonymous said...

þú mátt alltaf tana á Grenimelnum sko hoho

Kv. María frænka almúgans

Anonymous said...

Pjalla! Þú ert svo öflug á blogginu kona!
Fíalaða. Hlakka til að eiga með þér heitann og góðann tíma í bústað á föstudaginn. ACE!