Tuesday, October 14, 2008

Nei hættu nú alveg

Þegar ég kem heim út tubinu þá geng ég í gegnum garð, þegar ég kem út úr garðinum kem ég að skóla sem er með krökkum á aldrinum 5-7 ára. Um daginn þegar ég var að labba heim tók ég eftir því hvað var gaman hjá þessum krökkum, skoppandi á stórum boltum og í sippó og hvað það eina, svo tek ég eftir stelpuhóp sem dansa og klappa í hring, en þegar ég lít nánar á hópinn þá er lítil stelpa í miðjunni, kanski 5 ára og heldur um mjaðmirnar á sér og sveiflar rassinum og "mjöðmunum" hvað hún best getur á meðan vinkonur hennar hrópa: "DO IT SEXY".

Hvað er að? Er ekki komið gott? Mér svo gjörsamlega blöskraði að ég varð eiginlega bara móðguð. Ekki nóg með það að stelpur fá ekki að halda í æskuna svo lengi eftir fermingu, ef þá það.. heldur eru litlar stelpur, 5 ára farnar að fá kynímind???? Eða er ég að misskilja??

Dana

1 comment:

Lovísa Arnardóttir said...

neinei, þú ert ekkert að misskilja, klámvæðingin teygir anga sína hvert sem er, aldur kemur henni ekki við. Ég fæ kast!