Tuesday, November 4, 2008

Má ég fá pjéningana mína??

Hvar er helvítis lánið mitt??

Núna er ég farin að finna fyrir því að vera námsmaður í Kreppunni og vera þar að auki að læra erlendis. Ég er ekki búin að fá lánið mitt og síðasti innborgunardagur fyrir íbúðina er á morgun þannig að ég er eiginlega í djúpum skít..

Flestir myndu nú bara ráðleggja mér að taka út af íslenska kortinu mínu og nota það þangað til að ég fengið lánið.. en neibb - það var gleypt í hraðbanka og eyðilagt í leiðinni þannig að ég á 2 pund. Það ætti að duga fyrir vatni næstu daga... iss..

Hef það nú svosem ekkert ALSLÆMT en maður er bara orðin pirraður á þessu.

Helgin með henni Eyrúnu minni var yndi! Er eiginlega bara að spá í að fara til hennar fljótlega..









Já.. þetta var gaman.. meiri myndir inni á facebook!

Annars er þessi vika ansi strembin þó þetta sé Readin Week (sem á að vera frí) og það er eiginlega bara brjálað að gera. Er að fara að flytja fyrirlestur á föstudaginn sem er alveg frekar stór. Svo þarf ég að fara að byrja á ritgerð sem ég á að skila fljótlega..

Var að spá í því í gær.. ef ég væri hérna sem au pair og hefði komið til að vera í 3 mánuði og væri að koma heim núna um jólin, sem er bara eftir einn og hálfan mánuð.. þá myndi ég ekki vilja fara. Ótrúlega skrýtið. Þegar ég var að fara út þá náði ég varla andanum, hélt að það væri eiginlega ekkert betra en að vera bara heima, og jafnvel bara vinna. En nei. hnéhnéhnéhné... kanski kem ég bara ekkert aftur heim..

Dana xx

3 comments:

Anonymous said...

Shit hvað neðsta myndin af þér er klekkuð! Vonandi reddast allt Danish mín:*

Eyrun S said...

vona það hafi gengið upp með lánið.. ég er ekki að höndla þessa umbreytingu að vera allt í einu fátækur námsmaður sem þarf að telja hverja krónu og get ekki bara rennt kortinu hægri vinstri hehe ;)

Og frábært að heyra hvað þú ert að fíla þig úti.. vonandi heldur það áfram eftir "the honeymoon phase" eins og þeir kalla fyrstu mánuðina:) en hey við erum ekki staddar á mest depressing stað í heimi sem Ísland virðist vera þessa dagana þannig HALLELÚJA:D

Svava Björk said...

Tek undir það með Írisi - síðasta myndin af þér er æði sæta :D